
YOGA Í YOGASTÖÐINNI
Markmið okkar er að veita þeim sem vilja iðka yoga kennslu og stuðning svo þeir geti lifað lífinu meðvitað og til fullnustu. Við stefnum að því að kenna fólki tækni sem stuðlar að betri líkamlegri heilsu, kyrrir hugann og kemur jafnvægi á tilfinningar með því takmarki að ná fullkomnu jafnvægi á líkama og sál í daglegu lífi. Við erum einhuga um að skapa heildræna yoga iðkun sem gefur iðkendum tækifæri á tengingu við hina djúpu kyrrð, sælu og hreysti sem innra líf gefur og fá djúpa heilun á öllum sviðum vitundar, líkamlegu, huglægu, tilfinningalegu og andlegu.
Í Yogastöðinni er einlægt og friðsælt andrúmsloft þar sem við bjóðum alla velkomna sem hafa áhuga á að iðka yoga, sama hvert kyn þeirra er, aldur, hreysti eða hreyfanleiki. Ein af megináherslum Yogastöðvar-innar er persónulegt samband við nemendur/yogavini, svo að við getum betur hjálpað og leiðbeint þeim. Við hvetjum alla iðkendur til að vera ábyrgir fyrir eigin innri þroska, svo þeir öðlist góða heilsu og hreysti.
MEÐVITAÐ YOGA
(þróað af Talyu og Gumma)
Með stöðugri iðkun og námi á grunnlögmálum nokkurra uppljómaðra meistara hafa Talya og Gummi þróað með sér hugmyndir og skilning sem leitt hafa til þeirrar iðkunar er þau kalla meðvitað yoga. Það er mjög öflugt tæki til sjálfs-skoðunar þar sem við tengjum öndun og hreyfingu saman til að dýpka innri skynjun iðkandans (vinyasa yoga) og beitum auk þess mismunandi tækni sem löguð er að þörfum og getu hvers einstaklings (vini yoga). Meðvitað yoga er kennt í þremur stigum til að mæta þörfum einstaklingsins.
EINKATÍMAR
Einkatímarnir færa þér dýpri iðkun í formi persónulegrar nálgunar. Ef þú hefur einhverjar sérstakar þarfir, meiðsli eða markmið hafðu þá samband við okkur.
YOGA MEÐ SIGFRÍÐI
Sigfríður nam fyrst hjá Sivananda og síðar meir Kripalumiðstöðinni. Hún hefur þróað sína eigin kennslu í um 25 ár og byggir hana á mörgum aðferðum, eins og mudra, vinyasa og öndunaræfingum. Sigfríður kennir með einstakri gleði og hefur hún haft sömu iðkendur í áratugi.
KRIYA YOGA
Kriya Yoga er forn aðferð réttra lifnaðarhátta og hugleiðslu sem ræktar líkama, huga, vitsmuni og vitneskju um sálina með notkun öflugrar hugleiðslutækni og yogískum aga. Með hjálp einbeitingar, stellinga og öndunar, upplifum við þrenns konar guðdómlega eiginleika: innra ljós, innri sláttur og innra hljóð. Þetta þróar gjörhygli, sem gerir okkur mögulegt að ná djúpu vitundarástandi og breyta lífi okkar til batnaðar. Kriya Yoga kennir að hver athöfn, kri, er gerð með ya, sálinni sem dvelur innra. Kriya Yoga er ekki tengt neinum trúarbrögðum, aðeins skynjun á innri veruleika.
"Ėg er ánægð með hvað kennsla er einstaklingsmiðuð þrátt fyrir fjöldann sem sækir tímana, og hvað kennarar átta sig vel á þörfum, getu og takmörkum hvers og eins."VERÐERTU AÐ KOMA Í FYRSTA SINN? Nemendur að koma í fyrsta sinn fá 15% afslátt á mánaðar- eða þriggja mánaða korti. Skráið ykkur eftir fyrsta tímann og njótið nýja NEMENDAAFSLÁTTARINS. |
|
| Stakur tími | 1.500 kr. |
| Mánaðarkort | 11.000 kr. |
| Þriggja mánaða kort | 30.000 kr. |
| Sex mánaða kort | 51.000 kr. |
| Árskort | 73.000 kr. |
| Tilboð fyrir eldri borgara, nemendur og hjón: athugið verðsíðuna | |
| EINKATÍMI | |
| Fyrsti tími | 7.000 kr. |
| Eftir það | 6.000 kr. |