
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúli 15
588-5711 / 691-8565
yogastodin@yogastodin.is
Yogastöðin Heilsubót var stofnuð 1974 og er elsta starfandi yogastöð á Íslandi. Í yogastöðinni er sérstaklega vinalegt og friðsamlegt andrúmsloft þar sem við bjóðum alla velkomna sem vilja dýpka sjálfsskilning sinn og öðlast djúpstæðan frið í gegnum ástundun Yoga.
Yogastöðin Heilsubót er í hjarta Reykjavíkur, með björtum sal og útsýni til Esju. Í búningsherbergjum karla og kvenna bjóðum við upp á góða sturtu og gufubaðsaðstöðu. Við höfum einnig verslun sem selur ýmsar vörur til yogaiðkunar. Þú finnur okkur á þriðju hæð Síðumúla 15.





