GUÐMUNDUR PÁLMARSSON

Guðmundur Pálmarsson hefur kennt yoga síðan 2002. Það sama ár dvaldist hann í Shivanandana yogamiðstöð í um 7 mánuði við stranga iðkun. Þar kynntist hann Talyu konu sinni og dvöldu þau í mismunandi  yogamiðstöðvum á árunum 2002 og 2003. Guðmundur stundaði Prana Vinyasa kennaraþjálfun með Shiva Rea 2006-2008 og Viniyoga/vinyasa kennaraþjálfun hjá Krishnamacharya Healing Yoga Foundation 2008-2010. Þar nam Guðmundur mjög ítarlega yogaþerapíu og einkayogaþjálfun til að ná hámarksárangri með hverjum nemenda. Guðmundur hefur náð djúpstæðri meistrun í vinyasa krama og þar af leiðandi náð gífurlegri líkams og öndunarstjórnun í gegnum stöðuga iðkun á undaförnum 10 árum, þetta hefur gefið honum djúpt innsæi í að lesa líkama fólks og gefa ráð sem virkilega geta gefið fólki frelsi undan kvillum sínum. Guðmundur er gífurlega hæfur til að kenna hverjum sem er hvar sem hver einstaklingur er í yogaiðkun sinni, byrjenda sem lengra komnum. Guðmundur hefur einnig stundað daglega Kriya Yoga iðkun frá 2003

"Það eina sem iðkandi yoga þarf er stöðug iðkun og aldrei að gefast upp, en það er ekki sama hvernig yoga þú iðkar, til að ná virkilegum varanlegum árangri þarf iðkunin að vera öndunarmiðuð, þetta er leiðin að heilbrigðum líkama, einbeittum huga og innri friðar. Yoga er stórkostlegt tæki til heilunar og djúpstæðrar umbreytingar þegar það er ekki hrein líkamsræki."

TALYA FREEMAN

Talya hefur iðkað yoga frá árinu 1997 og kennt það síðan 2002. Hún kynntist fyrst yoga þegar hún var 19 ára gömul og nam leik/sönglist við leiklistarskólann LAMDA í London. Það var ekki fyrr en hún var 25 ára gömul, er hún glímdi við átröskun og þunglyndi, sem hún fór virkilega að iðka yoga. Hún kynnti sér margar tegundir yoga og bjó meðal annars í stuttan tíma í yogamiðstöðinni Yoga for Health Foundation í Ickwellbury. Hún fékk sína fyrstu kennara-þjálfun hjá Sivananda-samtökunum og eftir námið bjó hún í Sivananda-miðstöð í Orleans, Frakklandi. Seinna fékk hún      kennaraþjálfun hjá Shiva Rea. Hún hefur einnig numið mörg önnur meðferðarform eins og: Dr. Hauschka, Alexander-tækni, ilmþerapíu, næringarfræði, Reiki 1 og 2, Avatar námskeið. Talya hefur upplifað þau umbreytingaráhrif sem yoga hefur og trúir því fastlega að allir geti upplifað þá umbreytingu sem yoga býður upp á. Iðkun hennar núna og kennsla er innblásin af eiginmanni hennar og því innsæi sem Kriya Yoga-kennarar hennar og iðkun hafur veitt henni. Hún þakkar dætrum sínum, nem-endum, kennurum og öllum þeim sem hafa og munu veita henni innblástur í iðkun sinni.

Sigfríður Vihjálmsdóttir

Sigfríður Vilhjálmsdóttir tók við rekstri Yogastöðvarinnar Heilsubót 1987 ásamt manni sínum Mile og hefur kennt Yoga allar götur síðan. Sigfríður fékk kennaraþjálfun hjá Shivananda Organisation árið 1994 og kennaraþjálfun Kripalu 2001. Hún hefur kennt Yoga í um 25 ár og gerir það með einstakri gleði.

Yogastöðin Heilsubót | Síðumúli 15 | 108 Reykjavík | 588 5711 | 691 8565 | yogastodin@yogastodin.is