
EINKATÍMAR
Einkatími er frábær kostur fyrir þá sem vilja mjög markmiðaða iðkun, fyrir þá sem þjást af meiðslum eða minniháttar óþægindum (líkamleg sem huglæg vandamál) eða einfaldlega fyrir þá sem vilja aðeins iðka heima í stofu. Persónuleg nálgun einkatímans er alltaf sú nálgun sem skilar hvað mestum árangri og á sem fljótlegasta hátt, nánast sama hvað takmarkið er. Vegna lífsstíls okkar söfnum við óþarfa streitu og spennu sem sest í líkamann. Þetta gerir okkur ómeðvituð um innra sem ytra umhverfi okkar og veldur vanda-málum í lífi okkar. Það getur birst sem krónískir verkir í líkama eða langvinn streita sem kemur fram í minniháttar sjúkdómum.
Einföld yoga rútína í einungis 20 mínútur á dag, framkvæmd 4-7 sinnum í viku, getur gert kraftaverk og breytt óþægindum í þægindi, ómeðvituðu ástandi í meðvitað, streitu í djúpa kyrrð.
Eina sem við þurfum er að taka ábyrgð á heilsu okkar, svo einfalt er það.

Á HVERJU GET ÉG ÁTT VON?
Við mælum með því að hver einstaklingur komi a.m.k. í 2-3 einkatíma, yfir tveggja til þriggja vikna tímabil, til að fá nægan skilning á iðkuninni og því flæði sem skapast þarf. Eftir það er gott að hittast á um 3-4 vikna fresti þar til iðkandinn hefur fengið fullt sjálfstæði í sinni iðkun. Þegar iðkandinn er orðinn mjög sjálfstæður í sinni iðkun, hittumst við eftir þörfum einstaklingsins, förum yfir iðkunina og bætum við ef þarf. Í fyrsta tíma tökum við púlsmælingu og framkvæmum ítarlega líkams-skoðun með einföldum æfingum og vöðvaprófi.
Iðkunin getur innihaldið líkams-, öndunar- og slökunaræfingar, hugleiðslu, sjónmyndun og notkun hljóða í tengslum við æfingar.

YOGAÞERAPÍA
Yogaþerapía er heildrænt meðferðarform sem lítur á einstaklinginn út frá mismunandi sjónar-hornum. Maðurinn hefur líkamlega, hugræna, til-finningalega og andlega tilvist. Yogaþerapían miðar alltaf við að koma einstaklingnum í jafnvægi við sjálfan sig og sitt umhverfi. Að einst-aklingurinn verði ábyrgur fyrir sinni eigin heilsu og vellíðan.
KENNARI
Guðmundur nam ítarlega í 3 ár hjá einum virtasta yogaskóla sem sérhæfir sig í einstaklingsmiðuðu yoga og yogaþerapíu (Krishnamacharya Healing Yoga Foundation).

VERÐ
Fyrsti tíminn á 7.000 kr.
Eftir það 6000 kr.
Hver einkatími er um 1 klst.
UPPLÝSINGAR
Sími: 691-8565
yogastodin@yogastodin.is
"Teach what is within you. Not as it applies to you, but as it applies to the one in front of you."
Tirumalai Krishnamacharya

Verð
EINKATÍMI
| Fyrsti tími | 7.000 kr. | |
| Eftir það | 6.000 kr. |
Hver einkatími er um 1 klst.